Kosy inniskór Blær, herrasnið — brúnt leður
Kosy heilsuinniskórnir eru íslenskt hugvit þar sem falleg hönnun og þægindi eru höfð að leiðarljósi. Sérvalin merinóull eða hágæða ítalskt leður gefa skónum nútímalegt og glæsilegt útlit. Níu svæða nuddinnlegg stuðla að slökun og vellíðan frá hvirfli niður í tær, draga úr spennu og örva blóðflæði. Nuddinnleggið veitir náttúrulega örvun sem minnir á þegar gengið er á tánum um náttúruna. Að koma heim eftir amstur dagsins og renna fótunum í Kosy skó er upphafið að endurheimt og þeirri slökun sem þú vilt upplifa á þínum griðarstað. Rétt mýkt sólans, sveigjanleiki, höggdeyfing og grip er úthugsað til að tryggja hámarks þægindi og endingu.
Herrasnið Kosy eru ögn víðari en kvensnið Kosy en eru auðvitað ekki annars háð kyni. Miklivægt er að taka ekki víðari skó en þarf til að halda vel að lögun fótanna. Skórnir er fáanlegir í nokkrum litum.
10.320 kr.
Lýsing
Kosy shoes – Walk Happy